þessi síða er komin í gröfina
Við erfi stelpur lifum svo low-life að ekkert spennandi hefur gerst

Reyni að segja frá eitthverju hér
já eins og margir menn vita ætlaði ég mér til spánar sem aupair. voða spennt fyrir fólkinu og dvölinni og barasta öllum pakkanum. Fór first í heimsókn til hennar Fjólu minnar heittelskuðu. Eyddi einni helgi í london. Djöfull var það gaman

fékk að sjá london og kynnast eitthverjum bút af næturlífinu þar. alveg yndislegt

á laugardeginum vöknuðum við þunnar og alltof ferskar, en drösluðumst inn í london þar sem ég fékk að sjá allt

höllina, london eye, mótmælenda skrúðgöngu fyrir öllu stríði í heiminum. ógleymanlegt. svo snemma á sunnudags morgninum lá leið mín til spánar. lenti á flugvellinum og átti að hringja í fólkið en nei! eitthverjir fávitar eyðilögðu sæstrenginn milli íslands og umheimsins þanig ég sat þarna símalaus og alls laus, en náði að skrapa saman klinki í tíkalla síma þarna úti og hringdi í fólkið. Þau fóru með mig heim og virkuðu alveg yndisleg. En það átti sko aldeilis eftir að breytast. daginn eftir byrjaði vesenið

krakkarnir stóður og öskruðu á mig hræktu á mig spörkuðu í mig, hentu bleyjunum sínum í mig og gvuð má vita hvað. Svo þegar ég réði ekki við þessi andsetnu börn þá öskruðu foreldrarnir á mig líka. að é væri einfaldlega bara heimsk og gæri ekki neitt!!! svo einn daginn gafst eg bara upp, stelpan var að tannbursta sig og var með stútfullan kjaftinn af tannkremi og hrækti því öllu framan í mig! ég snappaði og strunsaði inn í stofu og sagðist vera hætt! pakkaði saman og tróð mér inná Bjarka minn í Albir í nokkra daga þangað til ég fékk flug heim.
Núna er ég bara komin heim ógó sár eftir þessa reynslu mina
komin reyndar með nýja vinnu hjá Avis bílaleigu, byrja þar á þriðjudaginn(Y)
jæjja, þið sem entust í gegnum þetta nöldur blogg mitt

finnið ykkur í guðanabænum eitthvað að gera

hringið í mig r sum

Inga ;*